og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta Jóhannes  20:12  

Lofgjörð og bæn laugardaginn 26-27 maí kl. 12-12

eftir

6 daga



Minningarsjóður hefur verið
stofnaður um hann Óskar Pál
til að styðja ungu ekkjuna
Elísabetu Önnu Kolbeinsdóttur
sem hann lætur eftir sig og
Evu Viktoríu fósturdóttur hans.

Reikn.nr. 1101-05-423036
Kt.190888-3479

>> Lesa minningar grein <<



Hús mitt skal nefnast bænahús fyrir allar þjóðir


 Útvalin kynslóð
                     
 Alþjóðlegi Bænadagurinn


      


Útvalin sem konunglegt prestafélag

Samantekt: Kolbeinn Sigurðsson

I. Útvalin sem konunglegt prestafélag

 

I. Pet. 2:4-10.

4Komið til hans, hins lifanda steins, sem menn höfnuðu en er í augum Guðs útvalinn og dýrmætur. 5Látið sjálf uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús til heilags prestdóms, til að bera fram andlegar fórnir fyrir Jesú Krist, Guði velþóknanlegar. 6Því að svo stendur í Ritningunni: Sjá, ég set hornstein í Síon, valinn og dýrmætan.  Sá sem trúir á hann mun alls eigi verða til skammar.  7Yður sem trúið er hann dýrmætur en hinum vantrúuðu er steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, orðinn að hyrningarsteini 8og: ásteytingarsteini og hrösunarhellu.  Þeir steyta sig á honum af því að þeir óhlýðnast boðskapnum. Það var þeim ætlað.  9En þið eruð "útvalin kynslóð, konunglegur prestdómur, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þið skuluð víðfrægja dáðir hans," sem kallaði ykkur frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss. 10Þið sem áður voruð ekki lýður eruð nú orðin "Guðs lýður". Þið sem "ekki nutuð miskunnar" hafið nú "miskunn hlotið".

Frelsara okkar Jesú Kristi var hafnað af sínu eigin fólki og hann var krossfestur.  Hvers eigum við lærisveinar hans að vænta af þessum heimi?  Því skulum við ekki undrast ofsóknir og reynslur sem koma yfir okkur.  Faðirinn gaf sinn einka son til að deyja sem syndafórn fyrir alla menn og hann frelsar þá sem ákalla nafn hans.  En boðskapurinn stoppar ekki þar, því að sonur Guðs reis upp á þriðja degi sem frumgróði upprisunnar og ruddi brautina fyrir okkur sem á hann trúa.  Það sem bíður okkar er upprisa í himneskum líkama og Guð faðirinn hefur útvalið setta tíma fyrir þann dýrðar atburð.

 

                
Alþjóðlegi bænadagurinn og sólarhrings bænavakt 26-27 maí

Sólarhrings bænavakt verður í Bænahúsinu 26-27 maí.
Í tilefni alþjóðlega bænadagsins verður sólarhrings bæna og lofgjörðarvakt í Bænahúsinu dagana 26-27 maí frá kl. 12-12,  hádegi til hádegis þar sem við hvetjum alla til að mæta og leggja sitt af mörkum til að biðja fyrir landi og þjóð.

Alþjóðlegi bænadagurinn
verður haldinn hátíðlegur á Hvítasunnudag 27. maí. Þann dag ætlum við að gleðjast saman í lofgjörð og bæn með stórri samveru í Digraneskirkju kl 20:00
.

Þar syngjum við saman og biðjum og höfum Guð í fyrsta sæti. Hljómsveit sér um tónlistina og ýmsir kirkju- og safnaðarleiðtogar leiða bænina.

Hópurinn sem stendur að þessu er samkirkjulegur og kemur úr ýmsum áttum. Þessi hópur var hluti af hópnum sem stóð að bænagöngunni en hélt svo áfram og vildi gera fleira sameiginlegt.

Hugmyndin að alþjóðlegum bænadegi kemur erlendis frá og eitt af markmiðunum er það að enginn persóna eða samfélag/kirkja eigi heiðurinn. Allur heiður fer beint til Guðs.


Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í þessu með okkur og að þetta átak megi sannarlega vera samvinnuverkefni allra kristinna manna.

Þessi viðburður á sér stað á sama tíma í yfir 200 löndum.  Sjá www.globaldayofprayer.com




  Bænahúsið | Skútuvogur 12g | 104 Reykjavík | Banki: 0116-05-063995 | kt. 460406-1370